Tuesday, 26 May 2015

Yndisleg helgi!


Helgin okkar var mjög góð, eða hjá öllum nema greyið Helenu sem er búin að liggja í rúminu með pest síðan á fimmtudaginn, en hún er sem betur fer öll að koma til.

Á laugardaginn fórum við aftur í ABC þorpið en í þetta skiptið komum við með slatta af dóti fyrir þau, fótbolta, sippubönd, teygjur, blöðrur, nammi og fleira. Einnig fórum við með smá dótasendingu frá 6. bekk úr grunnskólanum á Egilsstöðum sem höfðu nýlega safnað góðri peningaupphæð fyrir þorpið.
Allir mjog spenntir


Stjornumadurinn sattur med nyjan bolta
Stelpurnar anaegdar med sippubondin
 Börnin voru himinlifandi með gjafirnar og fóru strax að leika með allt dótið, boltarnir voru sérstaklega vinsælir hjá strákunum í öllum aldurshópum. Nú geta þau allavegana skipt út sandpokanum fyrir nýjan fínan bolta merktan með Messi sem þeim fannst nú ekki leiðinlegt. Síðan vorum við dregin í fótbolta, hárgreiðslu, skoðunarferðir og almennt spjall sem var mjög skemmtilegt. Fjölskyldan hennar Sóleyjar var búin að finna einn dreng á ABC heimasíðunni sem vantaði styrktarforeldra og fékk Sóley að hitta hann í þorpinu og var það mjög falleg stund. 
Gledistund thegar Soley hitti styrktarbarnid sitt




Við vorum ekki mjög lengi í þorpinu því stuttu síðar kom Maureen sem er félagsráðgjafi, en hennar starf felst meðal annars í því að fara um fátæktarhverfin og finna hvar þörfin er mest. Hún byrjaði á að fara með okkur í heimsókn til aldraðrar konu sem býr í um 14 fermetra bárujárnskofa með um 10 börn, þetta voru ýmist barnabörn, barnabarnabörn eða börn annarra ættingja hennar sem hún sér alveg um. Gamla konan vinnur við götuna að selja grænmeti og fær yfirleitt um 1400 krónur á mánuði fyrir það en leigan á kofanum er 2100 krónur á mánuði svo það er erfitt að sjá hvernig hún eigi að framfleita sér og börnunum. Sem betur fer eru öll börnin hennar með íslenska styrktarforeldra en þau ganga í ABC skólann á daginn og borða allar máltíðirnar þar. Þar sem þau voru öll með styrktarforeldra gáfum við hetjunni smá peningaupphæð til að létta aðeins undir með henni.
Eftir þessa heimsókn keyrðum við inn í Madari fátæktarhverfið, en það er það næst stærsta í Kenýa. Vorum með 5 stærðarinnar lífverði með okkur því það er talið mjög hættulegt fyrir útlendinga að vera þar einir vegna mjög hárrar glæpatíðni. Eftir að hafa þröngvað okkur í gegnum marga kofa, klofað yfir skítug frárennsli og beygt okkur undir allan þvottinn komum við að heimili næstu fjölskyldu. Það var pínulítill kofi sem var ekki meira en 10 fermetrar að stærð, við varla komumst öll fyrir þar, en þar bjuggu hjón með fimm börnum. Fjögur þeirra voru þeirra eigin en nýlega kom til þeirra lítill 9 ára frændi, að nafni Peter, sem hafði misst báða foreldra sína fyrir ekki svo löngu en í framhaldinu tóku þau hann að sér þar sem hann átti engan annan að. Félagsráðgjafarnir frá ABC  höfðu tekið eftir börnunum að leik í hverfinu á skólatíma og fóru þá að grennslast fyrir um afhverju þau væru ekki í skóla, en þá kom í ljós að foreldrarnir höfðu ekki efni á því. Þá tók ABC börnin fjögur inn í skólann og fengu þau síðar íslenska styrktarforeldra. Peter kom svo seinna og hefur hann lítið sem ekkert gengið í skóla hingað til og vantaði honum sárlega styrktarforeldra til þess að geta gengið í skólann. Gréta ákvað þarna á staðnum að verða styrktarforeldri hans og var fjölskyldan himinlifandi með það, hann fékk svo strax skólabúning, tösku, skó og bækur. Hann byrjaði í skólanum strax á mánudaginn. Fjölskyldan býr við mjög slæmar aðstæður þar sem fjölskyldufaðirinn er mjög hjartveikur og hefur ekki efni á rannsóknum, hann liggur fyrir alla daga vegna slappleika og getur ekkert unnið. Móðirin fær að meðaltali 180 krónur á dag fyrir að þvo þvott ef hún fær kúnna, aðra daga fær hún ekkert. Mánaðarleigan þeirra er 2500 krónur á mánuði. Í þessu fátæktrahverfi þarf svo að borga 7 krónur fyrir 20 lítra af vatni sem þau sækja í brunna. Í hvert sinn sem þau þurfa á klósettið þurfa þau svo að borga 7 krónur. Stórar upphæðir eru því fljótar að safnast upp.
Peter (til vinstri) og fjolskyldan hans


Greta med Peter, nyja styrktarbarnid sitt


Gangvegurinn milli kofanna
Utidyrahurdin
Thvottur ut um allt
Að lokum fórum við til konu sem fyrir mánuði síðan hafði misst rúmlega eins árs son sinn úr malaríu. Hún var líka nýskilin við manninn sinn því hann beitti hana mjög miklu ofbeldi. Hún er með fjögur börn á framfæri og er atvinnulaus því hún treystir sér ekki til að fara út úr húsi því hún er alveg buguð af sorg og álagi. Konan réð ekki við tárin þegar hún sagði okkur frá aðstæðum sínum og ekki við heldur. Þetta eru hræðilegar aðstæður sem þessi kona býr við en sem betur fer eiga börnin hennar styrktarforeldra sem létta mikið undir með henni, því þar fara þau í skóla og fá heita máltíð í hádeginu. Við skildum að sjálfsögðu eftir handa henni dágóða upphæð sem vonandi léttir henni aðeins lífið næstu mánuðina. Þetta var mjög átakanleg heimsókn. Við höfum öll ákveðið að gerast styrktarforeldrar því okkur finnst ekkert vera sjálfsagðara, það er frábær tilfinning að geta gefið einstaklingi tækifæri í lífinu og hjálpað við að láta draum um framtíðina rætast. Hér vita allir að menntunin er mikilvæg og börnin hér eru æst í að fá að mennta sig. Ef einhverjir hafa áhuga á að gerast styrktarforeldrar þá er hægt að fara inn á www.abc.is en þar er listi yfir börn sem vantar stuðning. Einnig ef börnin ykkar eru að suða um nýtt systkini en það er ekki í boði þá er þetta frábær leið þar sem allir vinna :)


Á sunnudaginn tókum við daginn snemma og fórum með honum Paul „einkabílstjóranum“ okkar til Hell‘s gate sem er þjóðgarður í um tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá Nairobi. Þegar þangað var komið leigðum við okkur hjól þar sem við hjóluðum um þennan fallega þjóðgarð. Þarna mátti sjá sebrahesta, buffalóa, antolópur, gíraffa, vörtusvín og allskyns skrýtna fugla. Við hjóluðum inneftir garðinum þar sem við lögðum svo hjólunum og löbbuðum um mikið gil sem var alveg ótrúlega fallegt. En umhverfið í þessum garði er fyrirmynd „The Lion King“ þannig getið þið ímyndað ykkur fegurðina þarna. Eftir mikið labb og mikinn svita fórum við til baka og þar rákumst við á mann frá Möltu sem tók sig á tal við okkur og þegar hann vissi að við værum sjálfboðaliðar hérna varð hann voða kátur því hann sagðist vera með fyrirtæki hérna sem vantað verkefni til að styrkja og gera eitthvað fyrir. Við að sjálfsögðu bentum honum á ABC þorpið og hann tók vel í það og vildi fara þangað strax daginn eftir með okkur. Þetta var allt saman mjög ótrúlegt og skrýtið, en gaman að einhver vildi gera eitthvað fyrir þorpið. Skildum því kát við þjóðgarðinn og héldum heim á leið.














4 comments:

  1. Æðislegt að fá að fylgjast með ykkur og gangi ykkur vel ;)

    Kveðja
    Elín

    ReplyDelete
  2. Gaman að lesa og fylgjast með :) Er tengd Sigþóri :)

    ReplyDelete
  3. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með ykkur - þetta er mögnuð lífsreynsla sem þið eruð að upplifa. Gangi ykkur áfram vel :-)
    Hildur Ýr - frænka Signýjar

    ReplyDelete
  4. Það er magnað að heyra frá ykkur. Andstæðurnar geta varla verið meiri en þetta - fagurt land og mannleg eymd. Húrra fyrir ykkur.

    ReplyDelete