Sunday, 17 May 2015

Fyrstu dagarnir



Lentum í Nairobi um hádegi á miðvikudaginn þar hittum við að sjálfsögðu Íslendinga en svo kom Joe frá samtökunum að sækja okkur. Við byrjuðum á að fara í verslunarmiðstöð til að fá okkur SIM kort til að geta náð í hvort annað í vinnunni. Fórum svo á heimilið sem við verðum á næstu þrjár vikurnar. Þetta er einskonar ,,home stay“ en hér býr kona sem heitir Lucy og eldar hún fyrir okkur kvölds og morgna, sem er einstaklega þægilegt og það er bara eins og maður sé kominn á hótel mömmu. Við búum í þorpi sem er ekki langt frá Nairobi sem heitir Kikuyu en þetta er hálfgert sveitaþorp uppí hæðunum.

Strax morguninn eftir byrjuðum við að vinna. Sóley, Bryndís, Sigþór og Ragnhildur fóru á Tigoni sjúkrahúsið sem er í klukkustunda akstursfjarlægð með matatu (litlar kenýskar rútur sem stoppa þar sem maður vill á leiðinni) og er nánast upp í sveit. Á þessu sjúkrahúsi eru nokkrar deildir, þar er fæðingagangur, vökudeild, barnadeild, bráðamóttaka, almenn deild fyrir fullorðna og göngudeild fyrir HIV- og berklasjúklinga.

Sigþór og Bryndís eru búin að vera á barnadeildinni þar sem eru þrjár deildir - brunadeild, almenn deild og deild fyrir börn með niðurgang. Á hverri deild liggja að mesta lagi 10 börn ásamt mæðrum sínum. Við vorum aðallega inn á brunadeildinni því þar var mest að gera. Á öllum deildunum eru gefin lyf kl. 9.00 og 15.00. En á brunadeildinni þarf að þrífa brunasárin á þessum börnum og bera á þau silfuráburð. Börnin á brunadeildinni eru á aldrinum 1. – 10 ára. Flest þeirra eru mjög illa brunninn, en flest þessi brunaslys verða vegna þess að börnin detta í opin eldstæði í kofunum sem þau búa í. Það er ofboðslega erfitt að horfa upp á sársaukann sem þessi börn upplifa þegar sárin eru þrifin og borin áburður á þau. Þau fá teskeið af paracetamól mixtúru stuttu fyrir brunameðferðina, sem er mun frábrugðnara því sem við eigum að venjast heima. Heima á Íslandi eru börn og fullorðnir mjög vel verkjastillt fyrir brunameðferðir. Mæðurnar á Tigoni spítala þurfa að halda börnunum sínum niðri á meðan á þessu stendur. Börnin öskra, sparka og hágráta allan tímann sem meðferðin á sér stað og sárin eru þrifin að okkar mati mjög harkalega og með flýti, ólíkt því sem við sjáum heima og það er ekkert sem við getum gert nema haldið áfram með meðferðina og reyna að drífa verkið af. Mörg af þessum börnum eru enn á brjósti og fá þá verðlaunasopa frá mæðrum sínum eftir átökin sem róar þau. Hjúkrunarfræðingar leggja áherslu á að nota steríla hanska við umbúnað sáranna en þess á milli er ekki mikil áhersla á hreinlæti og eru börnin að jafnaði fljótlega komin út á stétt með mæðrum sínum þar sem m.a. má sjá flugur setjast í sárin.
Þetta er skolið

Sóley og Ragnhildur eru búnar að vera á fæðingarganginum/vökudeildinni. Aðstæður þar eru afar ólíkar því sem við þekkjum heima á Íslandi. Á deildinni er fæðingastofa þar sem tvær konur geta verið í einu. Ein stofa er fyrir konur sem eru búnar að fæða og þar deila oft tvær konur og tvö börn einu rúmi. Eitt herbergi er fyrir konur sem eru að bíða eftir að fæða og þær sem eiga börn á vökudeildinni, eitt herbergi fyrir konur sem fæddu börn með keisaraskurði og að lokum eitt bráðaherbergi fyrir veikar konur með nýfæddu börnin sín. Við höfum fylgst með fæðingu þriggja yndislegra stúlkubarna. Þessar þrjár fæðingar hafa verið afar ólíkar og mjög lærdómsríkar fyrir okkur að fylgjast með. Ein fæðingin var afar átakanleg að fylgjast með. Naflastrengurinn var afar stuttur og grannur og slitnaði áður en fylgjan hafði komið út. Ljósmóðirin reyndi sjálf að ná fylgjunni án árangurs og kom þá læknirinn til að reyna. Það gekk að lokum eftir ólýsanlegar kvalir nýbökuðu móðurinnar, þar sem hún fékk hvorki verkjalyf, hlýju né stuðning þeirra sem að verkinu stóðu. Svona er menningin hér, fæðingin á að vera náttúruleg, oft virðingarleysi í garð nýbakaðra mæðra og þeim sýnd lítil sem engin hlýja. Við vorum afar slegnar eftir að hafa fylgst með fæðingunni. Þegar konan var orðin ein eftir inni á fæðinastofunni læddumst við aftur inn, breiddum yfir hana teppi og snérum litlu dömunni að mömmu sinni og yfir hana færðist fallegt bros.

Fæðingabekkirnir

Við erum líka að starfa á heilsugæslu í mjög fátæku þorpi sem heitir Limuru. Þar er móttaka, meðgöngurftirlit, bólusetningaþjónusta og móttaka fyrir veik börn, sáramiðstöð og apótek. Einnig er þar fæðingastofa fyrir þær sem hafa ekki efni á að fæða á Tigoni sjúkrahúsinu en þessir tveir staðir eru ekki mjög langt frá hvor öðrum. Á heilsugæslunni er allt frítt fyrir sjúklinga, hvort sem það er umbúnaður, bólusetningar eða lyf. Á Tigoni þarf fólk að borga smáupphæðir.  Signý, Helena og Gréta byrja að vinna heilsugæslunni.

Heilsugæslan í Limuru
 
Í mæðraverndinni koma þungaðar konur í eftirlit. Konur mæta 4 sinnum á meðgöngunni  í eftirlit. Í fyrsta skiptið eru teknar blóðprufur, þar sem m.a. er mælt hemóglóbín og athugað hvort þær séu HIV jákvæðar eða með berkla en hér eru magir HIV jákvæðir og berklar eru algengir. Engar sónarmyndir eru teknar, hins vegar er  hjartsláttur barnsins hlustaður með hlustunarpípu. Þreifað er fyrir stærð fóstursins til að áætla hve langt konurnar eru gengnar. Einnig eru konurnar vigtaðar og blóðþrýstingur mældur. Litið er í augnslímhúðina á konunum  til að meta hvort þær séu blóðlitlar.  Konurnar fá svo járn og folinsýru töflur til að taka með sér heim í lítil bréfumslögum. Í mæðraverndina koma einnig konur eftir barsnburð og fá pilluna eða sprautu til að koma í veg fyrir þungun á meðan þær eru með barnið á brjósti, þetta kalla þau family planning.
Á barnamóttökunni skráum við börnin inn, vigtum þau og athugum hvort þau séu vannærð en þá fá þau tilbúinn næringarpakka en því miður er það ekki til núna á heilsugæslunni, en þar er allt af mjög skornum skammti. Síðan förum við í gegnum hvort þau hafa fengið allar bólusetningar og hvort sé kominn tími á nýjar. Einnig gefum við þeim A-vítamín sem við hellum uppí þau úr hylkjum. Þarna koma einnig inn veik börn og þá greinir hjúkrunarfræðingurinn hvað er að þeim. Okkur hefur þótt mjög athugavert hvernig þau horfa bara á kviðinn á börnunum og þá eru þau búin að greina þau með lungnabólgu og fá þá staðlaða meðferð við því.

Svona eru móttökurnar sem við fáum
á heilsugæslunni

Við höfum líka verið í apótekinu þar sem við höfum tekið til lyf í hundruði lyfjapoka, þar sem allir virðast fá sömu skammtana. Lyfin koma í 1000 tafla dunkum og þau eru skömmtuð í poka sem er úthlutað til sjúklingana til að taka með sér heim.

Það er ótrúlega margt sem við erum búin að læra á þessum stutta tíma og erum við mjög spennt fyrir komandi vikum. Annars gengur bara allt mjög vel hjá okkur, erum farin að læra leiðina sem við þurfum að fara á hverjum degi en það getur verið ævintýri útaf fyrir sig og svo erum við farin að læra nokkur orð á Swahili. Uppskerum mörg bros frá börnunum sem eru greinilega ekki vön að sjá hvítt fólk og finnst það mjög spennandi, á meðan önnur verða skelfingu lostin og fara að hágráta þegar það sér okkur. Fólkið hér er allt rosalega yndælt og virkilega vel tekið á móti okkur á öllum stöðum.

Ps. Vid hofum mjog gaman ad thvi ad fa comment fra ykkur, thad hvetur okkur afram til ad blogga meira :)

5 comments:

  1. Frábært að fá þessar fréttir af ykkur. Það hlýtur að vera bæði gaman og erfitt að upplifa svona ólíka menningarheima. Áfram þið :)

    ReplyDelete
  2. Skemmtilegt að fylgjast með hvað þið eruð að gera. Hlakka til að heyra meira.
    Kv. Þorri

    ReplyDelete
  3. Maður fær alveg verk í hjartað yfir að lesa um aðstæðurnar sem fólkið þarf að búa við en á sama tíma hvað það er heppið að fá ykkur 😊 dásamleg myndin af Signýju knúsa barnið . Gangi ykkur vel og hlakka til að fylgjast með.

    ReplyDelete
  4. Ótrúlega merkileg lesning, krakkar. Hreyfir við manni og setur hlutina í samhengi - takk fyrir það :)
    Bestu kveðjur til ykkra allra,
    Dagur

    ReplyDelete
  5. Mikið held ég að sé lærdómsríkt fyrir ykkur að vera þarna og ótrúlega gaman hvað þið segið vel frá því sem þið eruð að fást við.
    Hvað ætli það sé langt síðan heilsugæsla tók til starfa þarna - 20 - 30 ár?
    Njótið verunnar og svo komið þið heim stútfull af reynslu sem fáir upplifa á námsárum sínum.
    Húrra fyrir ykkur!
    Kveðjur

    ReplyDelete