Sunday, 10 May 2015

Styttist í brottför


Góðan daginn allir!!

Svo við kynnum okkur nú aðeins þá erum við 7 hjúkrunarnemar úr Háskóla Íslands sem vorum að ljúka okkar þriðja ári við skólann sem þýðir að nú erum við orðin 3/4 fullgildir hjúkrunarfræðingar! Jeij! 
Kenýahópurinn: Sigþór, Bryndís, Signý, Ragnhildur, Sóley, Gréta og Helena
Fyrir rúmu ári síðan tókum við þá ákvörðun að fara út í hjálparstarf að loknu þriðja ári, það voru ýmis lönd sem komu til greina en samt dró Kenýa alltaf sterkast til sín. Síðan eftir hryllingsfréttirnar frá landin sem dundu yfir páskana fengum við smá bakslag, en með krísufundum og miklum samskiptum og ráðleggingar frá tengiliðnum okkar í Kenýa ákváðum við að halda okkar striki og fara til Kenýa.

Þetta er auðvitað sjálfboðaliðavinna og borgum við sjálf undir okkur, bæði flug, gistingu og fæði. Það er ekki gefins og því höfum við verið dugleg að reyna að safna fyrir okkur með ýmsum hætti, til dæmis héldum við stórt bingó í október, síðan hafa verið seldar gulrætur, páskaliljur og sjúkratöskur svo fátt eitt sé nefnt. Viljum við nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa styrkt okkur á einn eða annan hátt.

Samtökin sem við förum í gegnum heita Advance Africa (www.advance-africa.com/) en þau starfa vítt og breytt um Afríku. Við munum vera staðsett í Kikuyu town sem er 25 km frá miðbæ höfuðborgarinnar, Nairobi. Við munum vinna á sjúkrahúsi sem heitir Tigoni district hospital en þessi spítali þjónar stóru fátæktrarhverfi í grenndinni. Þar er mikill starfsmannaskortur og verður gott að geta aðstoðað við það sem þarf. Svo á þetta mikið eftir að koma í ljós og reynum við að vera dugleg að blogga eftir bestu getu þegar við komumst á netkaffihús.

Við höfum fengið ýmsar vörur í styrk frá fyrirtækjum eins og Rekstravörum, Icepharma, Actacvis og Landsbankanum og þökkum við þeim mikið fyrir. En þetta eru vörur sem við förum með á spítalann til að gefa því þar er allt af mjög skornum skammti. En þetta eru vörur eins og hlífðarfatnaður, sáraumbúðir, spritt, teygjubindi og margt, margt fleira. Frá Landsbankanum fengum við sennilega á annað hundrað boli og derhúfur sem við fylltum heila tösku af, en það munum við fara með í Íslenska ABC barnaþorpið í Nairobi næstu helgi. Að lokum styrkir Fly bus okkur með rútuferð til Keflavíkur! :)

Þetta var heljarinnar verk að flokka, velja og síðan að skipta þessu á milli okkar. 






Síðan hefst ævintýrið á morgun sem er frekar óraunverulegt því aðdragandinn er búinn að vera nokkuð langur. Við erum öll gríðarlega spennt, sumir farnir að missa svefn, og hlökkum mikið til að takast á við áskoranir komandi vikna, en við munum starfa við sjúkrahúsið í 3 vikur. Á morgun fljúgum við til London og verðum komin til Nairobi í hádeginu og miðvikudaginn. 

-Gréta María

1 comment:

  1. Góða ferð og gangi ykkur vel.
    Hlakka til að heyra frá ykkur.
    Sennilega verður ekki mikill tími til skrifta - kannski bara að segja að þið hafið komist heilu og höldnu.

    ReplyDelete