Friday, 29 May 2015

Viðburðarrík vika



Á mánudaginn var hefðbundinn dagur í vinnunni hjá okkur. Helena var enn að jafna sig eftir veikindi en Sigþór, Gréta, Signý og Bryndís voru áfram á Tigoni og Ragnhildur og Sóley á heilsugæslunni í Limuru. Eins og fram hefur komið höfum við algjörlega heillast að barnaþorpi ABC í Nairobi. Í  kjölfar þess að við hittum moldríkan Maltverja að nafni Ray  í Hell‘s Gate daginn áður hófst upp ótrúleg atburðarás. Í samræðum okkar kom fram að hann vinnur fyrir fyrirtæki sem m.a. framleiðir djúsa sem seldir eru víða í Afríku. Hann vildi endilega finna verkefni til að styrkja og var mjög hrifin af því sem við sögðum honum frá um barnaþorpið. Eftir langt spjall, margar símhringingar og enn fleiri skilaboð var komið að viðburðinum sem hann vildi bjóða börnunum í þorpinu uppá. Eftir vinnu drifum við okkur heim og fórum úr spítalagallanum því kl. 15.00 hafði Ray sent eftir okkur bíl til að keyra okkur til Nairobi. Við veltum mikið fyrir okkur hvort að þetta væri of gott til að vera satt, yrði þetta stærsta mannrán sögunnar eða frábær skemmtun fyrir krakkana?
Hið síðarnefnda varð að veruleika og bauð hinn ágæti Ray upp á stóran flutningabíl með dönsurum og lifandi tónlist og krakkarnir glaðir eftir því! Börn úr hverfinu fengu líka að njóta góðs af herlegheitunum sem og amman í næsta bárujárnskofa sem við heimsóttum um daginn.  Hún dillaði sér í takt við tónlistina meðan hún eldaði kvöldmatinn. Við vorum alsæl að fá að hitta vini okkar í þorpinu einu sinni enn og dönsuðum með þeim eins og enginn væri morgundagurinn!





Mikid fjor og mikid dansad


Thessi tvo dilludu ser allan timan


Við héldum sæl og glöð heim eftir síðustu heimsóknina okkar í ABC barnaþorpið í þessari ferð en vonandi fáum við tækifæri til að heimsækja þessi yndislegu börn einhvern tíma aftur í framtíðinni. Þau eiga svo sannarlega stóran og góðan stað í hjarta okkar!

 
Vinnuvikan hefur bara gengið mjög vel fyrir sig við erum að svplítið að rótera á milli deilda og á milli spítalans og heilsugæslunnar, við reynum að vera á þeim stöðum þar sem starfskraftar okkar nýtast sem best. Í vikunni hafa verið smá veikindi hjá fólki og bara einn dagur þar sem allir mættu til vinnu. En þetta er nú ekki alvarlegt, aðallega magapestir, en þá er nú gott að vera umkringdur hóp hjúkrunarnema sem eru með lager af allskonar til að bæta líðan. Annars erum við bara að venjast lífinu hérna vel, komin í góða rútínu og erum alveg að njóta okkar í botn á hverjum degi.

Pinkulitlir fyrirburar

Skurdstofan
 Friðhelgi einkalífsins er eitthvað sem er ekki mjög þekkt fyrirbæri hér á heilbrigðisstofnunum. Því til dæmis á sjúkrahúsinu þá tala læknar og hjúkrunarfræðingar hispuslaust um aðra sjúklinga hátt og skýrt fyrir framan alla biðstofuna. Við höfum til dæmis verið vitni af því að á skoðunarherberginu á fæðingardeildinni að hurðin þar er alltaf opin inn og oft eru tvær konur í skoðun á sama tíma og sjaldan er dregið fyrir á milli þeirra. Það er mikill umgangur alltaf inn í stofuna. Til dæmis í eitt skiptið kom húsvörðurinn og var að þrífa einhverja hillu svo þegar hann var búinn að því stóð hann bara og starði á konuna á bekknum á meðan læknirinn var að athuga hvað hún væri komin með í útvíkkun, um þetta gerir enginn athugasemd.
Það er mikill skortur á plássi á spítalanum og þar er hver fermetri nýttur og er mjög algengt að sjá tvær konur með hríðir saman í einu mjóu rúmi. Á barnadeildinni er líka algengt að tvær mæður og tvö börn deili saman rúmi - hér kvartar samt enginn. Okkur hefur þótt erfitt að horfa upp á suma hluti eins og það að það var kona sem fæddi andvana barn og eftir fæðinguna var hún sett inn á stofu með öllum konunum sem voru með lifandi fædd börn sín þar sem hamingjan er uppmáluð. Þetta er samt ekki alltaf hamingja hjá þessum konum sem eignast börn hérna því þetta getur verið mikil birgði fyrir þær sem búa við slæmar aðstæður og mikla fátækt, það var til dæmis ein kona sem vildi gefa Grétu barnið sitt.

Laeknarnir a faedingaganginum
Af heilsugæslunni er allt gott að frétta, alltaf nóg að gera þar hjá öllum og biðraðir eftir allri byggingunni. Það sem okkur hefur þótt svolítið skrítið á heilsugæslunni er að á barnamóttökunni koma saman fárveik börn, með allar tegundir pesta og sjúkdóma, og 6 vikna ungabörn sem eru að fá fyrstu bólusetningarnar sínar eru berskjölduð innan um alla lasarusana. Þarna er öllum troðið saman í eitt herbergi þar sem allir eru að hósta ofan í hvort annað.
 
Faum okkur alltaf mango a skiptistodinni
Á miðvikudaginn var okkur svo boðið í mat hjá honum Mike og Helen konu hans en þau vinna bæði hjá ABC og eru algjörir dýrlingar. Það var rosalega gaman og koma inn á alvöru kenýskt heimili og maturinn sem Helen eldaði var alveg frábær og að sjálfsögðu var hann borinn fram með chapati brauði. Það var svolítið skemmtileg tilviljun að þegar við vorum á markaðnum síðustu helgi rákumst við á íslenska stelpu sem hefur verið hérna síðan í haust. Viti menn, haldið þið að þessi sama stelpa búi ekki bara heima hjá Mike og Helen, ótrúleg tilviljun. Mike og Helen eiga svo einn 5 ára dreng sem ber það skemmtilega nafn Halldór. En Mike bjó á Íslandi í eitt ár, árið 2007 og hefur hann því þessa tengingu. Litli Halldór leiddi borðbæn áður en við borðuðum og svo var aftur bænarstund í lok kvölds þar sem Mike talaði mjög fallega til okkar. Þetta var yndislegt kvöld og virkilega gaman að fá svona skemmtilegt heimboð.



Ps. Okkur thykir mjog gaman ad heyra fra ykkur. Til ad skilja eftir Comment tha velur madur - Comment as... Anonymous - skrifar commentid - smellir a publish - klikkar a.. Im not a robot og skrifar toluna sem kemur upp. :)

Tuesday, 26 May 2015

Yndisleg helgi!


Helgin okkar var mjög góð, eða hjá öllum nema greyið Helenu sem er búin að liggja í rúminu með pest síðan á fimmtudaginn, en hún er sem betur fer öll að koma til.

Á laugardaginn fórum við aftur í ABC þorpið en í þetta skiptið komum við með slatta af dóti fyrir þau, fótbolta, sippubönd, teygjur, blöðrur, nammi og fleira. Einnig fórum við með smá dótasendingu frá 6. bekk úr grunnskólanum á Egilsstöðum sem höfðu nýlega safnað góðri peningaupphæð fyrir þorpið.
Allir mjog spenntir


Stjornumadurinn sattur med nyjan bolta
Stelpurnar anaegdar med sippubondin
 Börnin voru himinlifandi með gjafirnar og fóru strax að leika með allt dótið, boltarnir voru sérstaklega vinsælir hjá strákunum í öllum aldurshópum. Nú geta þau allavegana skipt út sandpokanum fyrir nýjan fínan bolta merktan með Messi sem þeim fannst nú ekki leiðinlegt. Síðan vorum við dregin í fótbolta, hárgreiðslu, skoðunarferðir og almennt spjall sem var mjög skemmtilegt. Fjölskyldan hennar Sóleyjar var búin að finna einn dreng á ABC heimasíðunni sem vantaði styrktarforeldra og fékk Sóley að hitta hann í þorpinu og var það mjög falleg stund. 
Gledistund thegar Soley hitti styrktarbarnid sitt




Við vorum ekki mjög lengi í þorpinu því stuttu síðar kom Maureen sem er félagsráðgjafi, en hennar starf felst meðal annars í því að fara um fátæktarhverfin og finna hvar þörfin er mest. Hún byrjaði á að fara með okkur í heimsókn til aldraðrar konu sem býr í um 14 fermetra bárujárnskofa með um 10 börn, þetta voru ýmist barnabörn, barnabarnabörn eða börn annarra ættingja hennar sem hún sér alveg um. Gamla konan vinnur við götuna að selja grænmeti og fær yfirleitt um 1400 krónur á mánuði fyrir það en leigan á kofanum er 2100 krónur á mánuði svo það er erfitt að sjá hvernig hún eigi að framfleita sér og börnunum. Sem betur fer eru öll börnin hennar með íslenska styrktarforeldra en þau ganga í ABC skólann á daginn og borða allar máltíðirnar þar. Þar sem þau voru öll með styrktarforeldra gáfum við hetjunni smá peningaupphæð til að létta aðeins undir með henni.
Eftir þessa heimsókn keyrðum við inn í Madari fátæktarhverfið, en það er það næst stærsta í Kenýa. Vorum með 5 stærðarinnar lífverði með okkur því það er talið mjög hættulegt fyrir útlendinga að vera þar einir vegna mjög hárrar glæpatíðni. Eftir að hafa þröngvað okkur í gegnum marga kofa, klofað yfir skítug frárennsli og beygt okkur undir allan þvottinn komum við að heimili næstu fjölskyldu. Það var pínulítill kofi sem var ekki meira en 10 fermetrar að stærð, við varla komumst öll fyrir þar, en þar bjuggu hjón með fimm börnum. Fjögur þeirra voru þeirra eigin en nýlega kom til þeirra lítill 9 ára frændi, að nafni Peter, sem hafði misst báða foreldra sína fyrir ekki svo löngu en í framhaldinu tóku þau hann að sér þar sem hann átti engan annan að. Félagsráðgjafarnir frá ABC  höfðu tekið eftir börnunum að leik í hverfinu á skólatíma og fóru þá að grennslast fyrir um afhverju þau væru ekki í skóla, en þá kom í ljós að foreldrarnir höfðu ekki efni á því. Þá tók ABC börnin fjögur inn í skólann og fengu þau síðar íslenska styrktarforeldra. Peter kom svo seinna og hefur hann lítið sem ekkert gengið í skóla hingað til og vantaði honum sárlega styrktarforeldra til þess að geta gengið í skólann. Gréta ákvað þarna á staðnum að verða styrktarforeldri hans og var fjölskyldan himinlifandi með það, hann fékk svo strax skólabúning, tösku, skó og bækur. Hann byrjaði í skólanum strax á mánudaginn. Fjölskyldan býr við mjög slæmar aðstæður þar sem fjölskyldufaðirinn er mjög hjartveikur og hefur ekki efni á rannsóknum, hann liggur fyrir alla daga vegna slappleika og getur ekkert unnið. Móðirin fær að meðaltali 180 krónur á dag fyrir að þvo þvott ef hún fær kúnna, aðra daga fær hún ekkert. Mánaðarleigan þeirra er 2500 krónur á mánuði. Í þessu fátæktrahverfi þarf svo að borga 7 krónur fyrir 20 lítra af vatni sem þau sækja í brunna. Í hvert sinn sem þau þurfa á klósettið þurfa þau svo að borga 7 krónur. Stórar upphæðir eru því fljótar að safnast upp.
Peter (til vinstri) og fjolskyldan hans


Greta med Peter, nyja styrktarbarnid sitt


Gangvegurinn milli kofanna
Utidyrahurdin
Thvottur ut um allt
Að lokum fórum við til konu sem fyrir mánuði síðan hafði misst rúmlega eins árs son sinn úr malaríu. Hún var líka nýskilin við manninn sinn því hann beitti hana mjög miklu ofbeldi. Hún er með fjögur börn á framfæri og er atvinnulaus því hún treystir sér ekki til að fara út úr húsi því hún er alveg buguð af sorg og álagi. Konan réð ekki við tárin þegar hún sagði okkur frá aðstæðum sínum og ekki við heldur. Þetta eru hræðilegar aðstæður sem þessi kona býr við en sem betur fer eiga börnin hennar styrktarforeldra sem létta mikið undir með henni, því þar fara þau í skóla og fá heita máltíð í hádeginu. Við skildum að sjálfsögðu eftir handa henni dágóða upphæð sem vonandi léttir henni aðeins lífið næstu mánuðina. Þetta var mjög átakanleg heimsókn. Við höfum öll ákveðið að gerast styrktarforeldrar því okkur finnst ekkert vera sjálfsagðara, það er frábær tilfinning að geta gefið einstaklingi tækifæri í lífinu og hjálpað við að láta draum um framtíðina rætast. Hér vita allir að menntunin er mikilvæg og börnin hér eru æst í að fá að mennta sig. Ef einhverjir hafa áhuga á að gerast styrktarforeldrar þá er hægt að fara inn á www.abc.is en þar er listi yfir börn sem vantar stuðning. Einnig ef börnin ykkar eru að suða um nýtt systkini en það er ekki í boði þá er þetta frábær leið þar sem allir vinna :)


Á sunnudaginn tókum við daginn snemma og fórum með honum Paul „einkabílstjóranum“ okkar til Hell‘s gate sem er þjóðgarður í um tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá Nairobi. Þegar þangað var komið leigðum við okkur hjól þar sem við hjóluðum um þennan fallega þjóðgarð. Þarna mátti sjá sebrahesta, buffalóa, antolópur, gíraffa, vörtusvín og allskyns skrýtna fugla. Við hjóluðum inneftir garðinum þar sem við lögðum svo hjólunum og löbbuðum um mikið gil sem var alveg ótrúlega fallegt. En umhverfið í þessum garði er fyrirmynd „The Lion King“ þannig getið þið ímyndað ykkur fegurðina þarna. Eftir mikið labb og mikinn svita fórum við til baka og þar rákumst við á mann frá Möltu sem tók sig á tal við okkur og þegar hann vissi að við værum sjálfboðaliðar hérna varð hann voða kátur því hann sagðist vera með fyrirtæki hérna sem vantað verkefni til að styrkja og gera eitthvað fyrir. Við að sjálfsögðu bentum honum á ABC þorpið og hann tók vel í það og vildi fara þangað strax daginn eftir með okkur. Þetta var allt saman mjög ótrúlegt og skrýtið, en gaman að einhver vildi gera eitthvað fyrir þorpið. Skildum því kát við þjóðgarðinn og héldum heim á leið.














Friday, 22 May 2015

Mögnuð vika!



Á hverjum morgni löbbum við í um 10 mínútur í gegnum hverfið hérna í átt að rútustöðinni. Leiðin er mjög holótt og ef það hefur rignt um nóttina, sem gerist nú nánast í hvert skipti, þurfum við að labba í miklu svaði og komum oft mjög skítug til fótanna þegar við setjumst upp í matatu-inn. Þetta eru litlar kenýskar rútur sem eiga að rúma 15 manns og er það frekar þröngt á þingi en nær alltaf eru miklu fleiri sem troða sér inn og það mesta sem við höfum séð er 21 manns og þá er sko gott að vera ekki með innilokunarkennd. Við erum um 40 mínútur á leiðinni til Limuru þar sem heilsugæslan er og þau okkar sem fara á Tigoni spítalann þurfa að taka annan matatu til að komast þangað. Maður getur alveg gleymt sér á leiðinni bara að horfa út um gluggann og fylgjast með fólki, þar sem má sjá asna að draga kerrur, konur að bera trjágreinar á höfðinu, börn að leik, sölufólk og karla sem sitja í hnapp sem virðast ekki hafa neitt fyrir stafni. Á rútustöðvunum eru allir farnir að þekkja okkur og allir vita hvert við erum að fara og þeir eru löngu hættir að reyna að plata okkur eitthvert annað. Einnig þegar við göngum um bæinn þá kallar fólk stundum Kikuyu, Kikuyu, en það er bærinn sem við búum í. 

Throngt a thingi

Husakynnin a leidinni

Markadurinn i Limuru
Á heilsugæslunni gengur allt mjög vel, við höfum nóg fyrir stafni þar og alltaf miklar raðir af fólki sem býður eftir þjónustu. Í barnaverndina koma einstöku sinnum mjög vannærð börn, en þá þarf að fylgja þeim sérstaklega eftir og fræða móðurina. Algengast er að börnin séu með lungnabólgu eða þá að þau séu of þurr. Til dæmis kom um daginn lítill drengur sennilega um 10 ára með litla bróður sinn, um 3 ára, en hann var orðinn mjög þurr af niðurgangi en þá hafði mamman sent þá því hún þurfti að vinna. En annars eru hinir ýmsu sjúkdómar sem eru þarna í gangi, niðurgangur, heilahimnubólga, hringormar, eyrnabólgur og margt, margt fleira. Nokkur börn hafa komið inn með blóðsýkingu vegna óhreininda, t.d. hafði ein mamman ekki þrifið barnið sitt frá því það fæddist en það var orðið meira en 4 mánaða gamalt. Okkur þótti svolítið athugavert að ef barnið er með hita er því strax gefið sýklalyf.
Í mæðraverndinni er líka nóg að gera og hefur það komið okkur á óvart hversu ungar mömmurnar eru hérna, það er mjög eðlilegt að 25 ára konur séu orðnar 4 barna mæður. Yngsta sem hefur komið til okkar var aðeins 14 ára gömul. Gréta, Helena og Signý fengu að taka þátt í einni fæðingu en það var hjá 17 ára stelpu. Hún hafði fundist á götunni kvöldinu áður með hríðir og hafði einhver kona tekið hana að sér og komið með hana á heilsugæsluna. 

Dottir thessarar 17 ara, 10 minutna gomul :)
 Á heilsugæslunni er enginn læknir og gegna hjúkrunarfræðingar því þeirra starfi líka ásamt því að sinna sínu, þær greina hvað er að og skrifa út lyfseðla, algjörar ofurkonur þarna á ferð og höfum við lært mjög mikið af þeim. Það hefur komið okkur á óvart hversu góð þjónustan er þar sem allt er frítt fyrir fólkið. 

Tharna skraum vid inn konurnar i maedraverndinni

Heilsugaeslan

Barnaeftirlitid
 Það voru frekar mikil rólegheit á fæðingadeildinni s.l. tvo daga. Ein fæðing og svo fengum við að fylgjast með keisaraskurði. Það var mjög áhugavert og skemmtilegt. Það má nú segja frá því svona til gamans að við vorum vissar um að konan ætti vona á tvíburum, bæði var hún með mjög stóra kúlu (konurnar hér eru langflestar með mjög penar kúlur) og svo höfðum við einhvern veginn lesið það út úr samskiptum starfsfólksins. Konan var mænudeifð og eftir stutta stund dró læknirinn út stærðarinnar dreng við mikla gleði okkar og biðum við spenntar eftir seinna barninu. Læknirinn hóf þá saumaskap af mikilli fagmennsku og við skildum ekki afhverju hann ætlaði ekki fyrst að ná í hitt barnið! En þetta var þá bara tómt rugl í okkur, það var bara einn myndarlegur dásemdardrengur í þessari stóru kúlu.

Vokudeildin
 Verkefnin á barnadeildinni eru þau sömu, þar höfum við verið að gefa börnunum lyfin sín. Sýklalyfjagjafirnar hafa komið okkur mikið á óvart, heima á Íslandi eru sýklalyf nær alltaf blönduð vökva svo fólk finni ekki til þegar það er að renna inn í æðina, en hérna er börnunum gefin sýklalyfin óþynnt og það sem litlu greyin orga þegar þau fá þetta í litlu æðarnar sínar. Barnabrunadeildin er alltaf full, en börnin þar eru mörg hver mjög illa brunnin, talað er um tvær algengustu ástæðurnar fyrir því að þú fái bruna en það er annars vegar að það hellist yfir þau te og hins vegar að í flestum húsum/kofum eru eldstæði í miðjunni þar sem eldað er þá er algengt að börnin detti á eldstæðið. Maður fær alveg illt í hjartað að þurfa að bera á þau smyrslið á hverjum morgni, en þau eru mjög illa verkjastillt þegar maður byrjar. Okkur þykir frekar sérkennilegt hvernig þau fara að með að þrífa brunasárin en mæðurnar taka kranavatn, bæta út í aðeins af soðnu vatni við og taka svo grisjur með berum höndum og hreinsa svo sárin sjálfar, það er allt hreinlætið. Síðan eigum við að vera með dauðhreinsaða hanska og bera á sárin með sama tunguspaðanum dag eftir dag.


Thessi yndislega stelpa er fotlud og brenndist illa a aftanverdum upphandlegg, en hun er alltaf med bros a vör og laetur okkur brosa hringinn.

Thessi litla stelpa brenndist illa i andliti thegar hun datt a eldstaedi, hefur nad miklum framforum!
 Starfsfólkið spyr okkur mjög reglulega hvort þau geti ekki komið til Íslands til að vinna og hvort við getum ekki tekið þau með, það virðist vera að fólkið í heilbrigðisgeiranum hérna hafi það ekki mjög gott. Einnig hún Lucy sem er „mamma“ okkar hérna heima (þrátt fyrir að vera yngri en við öll) hún vill mikið koma með okkur en hennar staða er frekar slæm. Hún á þriggja ára stelpu sem býr hjá ömmu sinni í öðru héraði en þar fær hún enga vinnu. Hún fær heilar 7000 krónur í hverjum mánuði fyrir að vera hérna og hugsa um sjálfboðaliðana. Hana dauðlangar að komast í hárgreiðslunám en það tekur 10 mánuði og kostar hver mánuður 7000 krónur í skólagjöld. Á hverjum mánuði sendir hún svo 4000 krónur til dóttur sinnar. Þetta er mjög sorgleg staða, en við munum reyna að gefa henni ríflegt þjórfé þegar við förum sem vonandi getur létt undir með henni eitthvað og vonandi getur hún farið í skólann sem hana dreymir um.
Spurningarnar sem við fáum stundum frá fólkinu hérna geta verið ansi spaugilegar. Okkur finnst svolítið gegnumgangandi að þau haldi að Ísland sé mjög líkt Kenýa hvað varðar loftslag, það að við hljótum að versla bara notuð föt, þau hafa gert boð í fötin okkar, þau halda að malaría og HIV séu líka algengustu sjúkdómarnir hjá okkur og við höfum verið spurð hversu margir ættbálkar séu á Íslandi.

Ps. fengum okkur sma Tusker bjor og somdum sma ferskeytlu:

Hingað komin kát og fín
kímin hress með ljúfa sál.
Höfum hér fengið nýja sýn
á heimsins vandamál.