Friday, 29 May 2015

Viðburðarrík vika



Á mánudaginn var hefðbundinn dagur í vinnunni hjá okkur. Helena var enn að jafna sig eftir veikindi en Sigþór, Gréta, Signý og Bryndís voru áfram á Tigoni og Ragnhildur og Sóley á heilsugæslunni í Limuru. Eins og fram hefur komið höfum við algjörlega heillast að barnaþorpi ABC í Nairobi. Í  kjölfar þess að við hittum moldríkan Maltverja að nafni Ray  í Hell‘s Gate daginn áður hófst upp ótrúleg atburðarás. Í samræðum okkar kom fram að hann vinnur fyrir fyrirtæki sem m.a. framleiðir djúsa sem seldir eru víða í Afríku. Hann vildi endilega finna verkefni til að styrkja og var mjög hrifin af því sem við sögðum honum frá um barnaþorpið. Eftir langt spjall, margar símhringingar og enn fleiri skilaboð var komið að viðburðinum sem hann vildi bjóða börnunum í þorpinu uppá. Eftir vinnu drifum við okkur heim og fórum úr spítalagallanum því kl. 15.00 hafði Ray sent eftir okkur bíl til að keyra okkur til Nairobi. Við veltum mikið fyrir okkur hvort að þetta væri of gott til að vera satt, yrði þetta stærsta mannrán sögunnar eða frábær skemmtun fyrir krakkana?
Hið síðarnefnda varð að veruleika og bauð hinn ágæti Ray upp á stóran flutningabíl með dönsurum og lifandi tónlist og krakkarnir glaðir eftir því! Börn úr hverfinu fengu líka að njóta góðs af herlegheitunum sem og amman í næsta bárujárnskofa sem við heimsóttum um daginn.  Hún dillaði sér í takt við tónlistina meðan hún eldaði kvöldmatinn. Við vorum alsæl að fá að hitta vini okkar í þorpinu einu sinni enn og dönsuðum með þeim eins og enginn væri morgundagurinn!





Mikid fjor og mikid dansad


Thessi tvo dilludu ser allan timan


Við héldum sæl og glöð heim eftir síðustu heimsóknina okkar í ABC barnaþorpið í þessari ferð en vonandi fáum við tækifæri til að heimsækja þessi yndislegu börn einhvern tíma aftur í framtíðinni. Þau eiga svo sannarlega stóran og góðan stað í hjarta okkar!

 
Vinnuvikan hefur bara gengið mjög vel fyrir sig við erum að svplítið að rótera á milli deilda og á milli spítalans og heilsugæslunnar, við reynum að vera á þeim stöðum þar sem starfskraftar okkar nýtast sem best. Í vikunni hafa verið smá veikindi hjá fólki og bara einn dagur þar sem allir mættu til vinnu. En þetta er nú ekki alvarlegt, aðallega magapestir, en þá er nú gott að vera umkringdur hóp hjúkrunarnema sem eru með lager af allskonar til að bæta líðan. Annars erum við bara að venjast lífinu hérna vel, komin í góða rútínu og erum alveg að njóta okkar í botn á hverjum degi.

Pinkulitlir fyrirburar

Skurdstofan
 Friðhelgi einkalífsins er eitthvað sem er ekki mjög þekkt fyrirbæri hér á heilbrigðisstofnunum. Því til dæmis á sjúkrahúsinu þá tala læknar og hjúkrunarfræðingar hispuslaust um aðra sjúklinga hátt og skýrt fyrir framan alla biðstofuna. Við höfum til dæmis verið vitni af því að á skoðunarherberginu á fæðingardeildinni að hurðin þar er alltaf opin inn og oft eru tvær konur í skoðun á sama tíma og sjaldan er dregið fyrir á milli þeirra. Það er mikill umgangur alltaf inn í stofuna. Til dæmis í eitt skiptið kom húsvörðurinn og var að þrífa einhverja hillu svo þegar hann var búinn að því stóð hann bara og starði á konuna á bekknum á meðan læknirinn var að athuga hvað hún væri komin með í útvíkkun, um þetta gerir enginn athugasemd.
Það er mikill skortur á plássi á spítalanum og þar er hver fermetri nýttur og er mjög algengt að sjá tvær konur með hríðir saman í einu mjóu rúmi. Á barnadeildinni er líka algengt að tvær mæður og tvö börn deili saman rúmi - hér kvartar samt enginn. Okkur hefur þótt erfitt að horfa upp á suma hluti eins og það að það var kona sem fæddi andvana barn og eftir fæðinguna var hún sett inn á stofu með öllum konunum sem voru með lifandi fædd börn sín þar sem hamingjan er uppmáluð. Þetta er samt ekki alltaf hamingja hjá þessum konum sem eignast börn hérna því þetta getur verið mikil birgði fyrir þær sem búa við slæmar aðstæður og mikla fátækt, það var til dæmis ein kona sem vildi gefa Grétu barnið sitt.

Laeknarnir a faedingaganginum
Af heilsugæslunni er allt gott að frétta, alltaf nóg að gera þar hjá öllum og biðraðir eftir allri byggingunni. Það sem okkur hefur þótt svolítið skrítið á heilsugæslunni er að á barnamóttökunni koma saman fárveik börn, með allar tegundir pesta og sjúkdóma, og 6 vikna ungabörn sem eru að fá fyrstu bólusetningarnar sínar eru berskjölduð innan um alla lasarusana. Þarna er öllum troðið saman í eitt herbergi þar sem allir eru að hósta ofan í hvort annað.
 
Faum okkur alltaf mango a skiptistodinni
Á miðvikudaginn var okkur svo boðið í mat hjá honum Mike og Helen konu hans en þau vinna bæði hjá ABC og eru algjörir dýrlingar. Það var rosalega gaman og koma inn á alvöru kenýskt heimili og maturinn sem Helen eldaði var alveg frábær og að sjálfsögðu var hann borinn fram með chapati brauði. Það var svolítið skemmtileg tilviljun að þegar við vorum á markaðnum síðustu helgi rákumst við á íslenska stelpu sem hefur verið hérna síðan í haust. Viti menn, haldið þið að þessi sama stelpa búi ekki bara heima hjá Mike og Helen, ótrúleg tilviljun. Mike og Helen eiga svo einn 5 ára dreng sem ber það skemmtilega nafn Halldór. En Mike bjó á Íslandi í eitt ár, árið 2007 og hefur hann því þessa tengingu. Litli Halldór leiddi borðbæn áður en við borðuðum og svo var aftur bænarstund í lok kvölds þar sem Mike talaði mjög fallega til okkar. Þetta var yndislegt kvöld og virkilega gaman að fá svona skemmtilegt heimboð.



Ps. Okkur thykir mjog gaman ad heyra fra ykkur. Til ad skilja eftir Comment tha velur madur - Comment as... Anonymous - skrifar commentid - smellir a publish - klikkar a.. Im not a robot og skrifar toluna sem kemur upp. :)

11 comments:

  1. Það er eitthvað stórkostlega fallegt við að rekast á lítinn Halldór í Kenýa. Takk fyrir áhugaverð skrif, hafið það gott!
    Bkv. Dagur

    ReplyDelete
  2. Takk fyrir bloggið, er farin að bíða spent eftir bloggi frá ykkur. Gaman að lesa og enn og aftur dáist að dugnaðinum í ykkur.
    Kveðja,
    Jóhanna

    ReplyDelete
  3. Gaman að fylgjast með ykkur. Gangi ykkur vel. Kveðja til þín Gréta mín og ykkar allra frá Kollu og Guðjóni

    ReplyDelete
  4. Þetta er alltaf að verða skemmtilegra og skemmtilegra - furðulegt að kynnast moldríkum Möltubúa úti í einhverjum þjóðgarði og fá hann á ABC- heimilið. Þetta er eins og eitthvert ævintýri.Sorglegt að heyra hvað heilsugæslan/fæðingadeildin er fátæk og lítil. Hver rekur hana?
    Rosalega skemmtilegt að heyra frá ykkur - gangi ykkur vel

    ReplyDelete
  5. Gaman að lesa og fylgjast með, bestu kveðjur til þín Gréta og ykkar allra. Kristín Guðj.

    ReplyDelete
  6. Stolt mamma að fylgjast með ykkur. Þið eruð svo flott og vel þenkjandi fólk. Gangi ykkur sem allra best og eigið góða ferðarest.

    ReplyDelete
  7. Þið eruð auðvitað uppáhalds Kenýafararnir mínir :D
    Haldið áfram að hafa skemmtilegt og gaman í ævintýraheiminum.
    Kv. Vala Karen

    ReplyDelete
  8. Frábært að fá að fylgjast með ykkur, þvílíkt ævintýri !
    Með bestu kveðju
    Svandís Bergs. hjúkrunarfræðingur á A-4

    ReplyDelete
  9. Gangi þer vel Gréta min og ykkur öllum
    Kveðja
    Pabbii og Sandra

    ReplyDelete
  10. Ég þekki þig ekki, en hafði mikla ánægju af að lesa bloggið þitt.
    Ég hef verið í Kenía og Halldór litli heitir í höfuðið á manninum mínum, og hann kallar okkur ömmu og afa. ;)
    Kveðja, Björg Davíðsdóttir

    ReplyDelete
  11. Cool and that i have a dandy proposal: How Much Remodel House custom home renovations

    ReplyDelete