Við áttum rosalega gott helgarfrí um helgina. Á laugardeginum kom hann Paul vinur okkar og sótti okkur til þess að fara með okkur niður í Nairobi að heimsækja ABC barnaþorpið. Við ætluðum að taka matatu en Joe ráðlagði okkur að fá fylgd þar sem þorpið er í mjög hættulegu hverfi. Við keyrðum í gegnum Nairobi og inn í „slömmið“ þar sem fólk býr í pínulitlum hjöllum úr bárujárni. ABC-þorpið er staðsett inn í þessu slömmi.
| Skolastofa |
| Eldhusid |
Þegar
við komum tók á móti okkur ungur maður sem heitir Mike sem vinnur hjá ABC. Hann
ólst sjálfur upp í slömmunu og hefur unnið fyrir samtökin s.l. ár. Hann fór í skiptinám
til Íslands 2007 svo hann kunni smá íslensku og skírði 3 ára son sinn Halldór!
Hann sýndi okkur þorpið sem samanstednur af skólastofum, heimavist og
samkomusal. Heimavistarhúsin eru kynja- og aldursskipt. Í yngstu heimavistinnu
(babyhouse) eru krakkar frá 2ja ára aldri, en stundum eru þarna enn yngri börn,
þar eru þétt skipuð rimlarúm en í heimavistinni fyrir elstu krakkana má sjá
plaggöt á veggjunum eins og í alvöru unglingaherbergi.
Í
skólann fara bæði krakkar sem búa á heimavistinni en líka sem búa hjá foreldrum
eða öðrum ættingjum. Þarna eru bæði krakkar sem eiga enga að en líka krakkar
sem eiga ættingja sem eru ekki hæf til að hugsa um þau að einhverjum ástæðum.
Sum hafa jafnvel fundist yfirgefin í ruslagámum.
Þegar
við höfðum fengið túr um svæðið fengum við rosalegar móttökur í samkomusalnum.
Krakkar á öllum aldri voru með atriði, bæði söngur og dans, þetta eru ótrúlega
hæfileikaríkir krakkar. Að lokum vorum við beðin um að fara upp á svið að kynna
okkur og krakkarnir vildu að við myndum syngja líka, svo við sýndum snilldar
takta og tókum „Krummi svaf í klettargjá“. Við afhentum svo boli, derhúfur,
litabækur og liti frá Landsbankanum en við höfðum komið með stútfulla tösku af
þessu góssi. Það var ótrúlega skemmtileg stemming í salnum og allir lifðu sig
vel í atriðin og við skemmtum okkur konunglega og vorum hrærð yfir þessum
móttökum.
| ,,Baby house" med songatridi |
| Gjafirnar fra okkur |
| Samkomusalurinn |
Eftir
að krakkarnir höfðu fengið hádegismat lékum við við þau það sem eftir lifði
dags og þau sýndu okkur um. Þessi yngstu vildu láta halda á sér og leiða sig,
og hinu elstu töffarar laumuðu nú líka litlum höndum í stóra lófa. Þau töluðu
flest mjög góða ensku, nema þau allra
yngstu sem voru ekki komin svo langt. Þau voru rosalega kurteis og áhugasöm.
Mjög metnaðarfull í námi og höfðu mörg stór plön fyrir framtíðina. Þarna eru
krakkarnir þakklátir fyrir menntun sína og leggja sig mikið fram.
Uppáhalds
leiksvæðið þeirra var uppi á þaki á aðalbyggingunni en hún er steypt en ekki úr
bárujárnsplötum eins og heimavistinar. Það er verið að byggja ofan á
aðalbygginguna svo „leiksvæðið“ er í raun byggingasvæði, ekkert handrið við
stigann eða á þakinu sjálfu og naglar stóðu út í loftið út um allt. Strákarnir
voru búnir að gera vegasalt úr múrsteinum og spýtu og stelpur léku sér í brennó
með „bolta“ sem þær höfðu búið til með því að setja sand inn í lítinn
plastpoka. Krakkarnir sungu líka og dönsuðu, spiluðu fótbolta og fleira.
Það
var mjög erfitt að kveðja þessi yndislegu börn, og það voru tárvot augu sem kvöddu
þennan laugardagseftirmiðdag.
Við
vonum að sem flestir gerist styktarforeldrar barna í ABC, en skólinn er að
langmestuleiti styrktur af íslendingum. Það er ómetanlegt að geta veitt börnum
annað tækifæri í lífinu.
| Mikid sungid og dansad |
| Med taktana alveg a hreinu |
| Stund milli strida |
Á
sunnudeginum tókum við matatu með þýskri vinkonu okkar, Nadine í miðbæ Nairobi
og við fórum á Masai markað. Þar er hægt að fá hina ýmsu minjagripi og þeir eru
margir mjög fallegir. Það eru mjög ágengir menn sem eru á markaðnum sem stunda
það að elta fólk og fá það til að versla þannig að maður þarf að vera ansi
harður til að losna við þá og fá að versla í friði.
Við
keyptum ýmislegt fallegt á slikk eftir mikið þras og prútt. Við fengum okkur
svo að borða á veitingastað þar sem máltið með gosi kostar um 500kr!
Við
enduðum svo daginn á því að fara í gíraffamiðstöð þar sem verið er að forða
ákveðinni gíraffategund frá útrýmingahættu. Þar fengum við að gefa gíröffunum
nammi og klappa þeim og var þetta skemmtilegur endir á góðum degi.
Ps. nu er audveldara ad skilja eftir comment her ad nedan, en tha velur madur Name/URL til ad skrifa nafnid sitt, thad er otharfi ad setja eitthvad i URL gluggann. Einnig er haegt ad commenta undir Anonymous :)
dásamlegt að geta fylgst með ykkur í þessari ferð sérsakt ofur knús til systur minnar hennar Sóleyjar
ReplyDeleteGaman að fylgjast með ykkur. Frábærar myndir!
ReplyDeleteGaman að fylgjast með ykkur. Stórt knús yfir til Kenya. Kv. Droplaug
ReplyDeleteFrábær frásögn og fallaegar myndir. Gangi ykkur vel oh kveðjur að heiman
ReplyDeleteFrábært að geta fylgst með ævintýrum ykkar í Afríku og myndirnar eru æði :) Knús á Helenuna mína :*
ReplyDelete