Wednesday, 3 June 2015

Líður að lokum



Á laugardaginn vöknuðum við snemma enda ferðinni heitið í safari. Paul og Bony kokkur voru mættir að sækja okkur á slaginu 7. Við vorum alsæl við brottför enda í fyrsta skipti í marga daga sem allir voru heilir heilsu! Á leiðinni stoppuðum við og skoðuðum útsýnið yfir Great Rift Valley en það er 9600 km langur dalur sem nær frá Mosambík til Jórdaníu. Við komum rétt eftir hádegið í tjaldbúðirnar sem við ætluðum að gista í yfir nóttina. Þvílík lúxustjöld, rúm með himnasæng, sturta, hrein handklæði, klósett með klósettsetu og klósettpappír, já það þarf lítið til að gleðja okkur! Veðrið var dásmalegt sem okkur Íslendingunum fannst nú ekki leiðinlegt. Áður en við lögðum af stað í fyrsta bíltúrinn okkar í þjóðgarðinn bauð Bony upp á dýrindis máltíð að hætti hússins. Þjóðgarðurinn sem við keyrðum inn í heitir Masai Mara og er vinsælasti og besti safari garður heims en þar er mikil náttúrufegurð og ótrúlega fjölbreytt og skemmtilegt dýralíf. Þar má finna um 570 fuglategundir og yfir 60 spendýr.  Masai vísar í samnefndan þjóðflokk og Mara þýðir að koma auga á. Við vorum fljót að standa upp í bílnum enda venjan að lyfta þakinu á safaribílum til að hafa betra útsýni. Fljótt fóru falleg dýr að láta sjá sig, t.d.sebrahesta,  impala, eland (stærstu antilopurnar), litlir refir og hýenur. Fjölmargir Pumba urðu á vegi okkar, einstaklega fallega ljót dýr sem við höfum mjög gaman af. Það er skemmtilegt að segja frá því að þessi dýr hafa svona ca 10 sekúndna minni, þegar þau hlaupa undan óvininum hlaupa þau í 10 sek og eru svo búin að gleyma af hverju þau voru að hlaupa! 





Fljótlega hýrnaði verulega yfir hópnum þegar við keyrðum í áttina að stórum fílahópi, ólýsanleg sýn! Stórglæsileg og tignarleg dýr en í hópnum var bæði að sjá karl- og kvendýr sem og litla kálfa. Í hverjum safaribíl er talstöð og hana nota bílstjórar til að láta hvorn annan vita ef þeir sjá eitthvað spennandi. Allt í einu snýr Paul okkar snarlega við og keyrir fljótlega að fallegum blettatígri og tveimur hvolpum hennar, ótrúlega falleg og að sögn nokkuð sjaldgæf sjón í garðinum. Við vorum alsæl með árangur dagsins og snérum sæl og glöð aftur í tjaldbúðirnar. Þar beið okkar frábær kvöldmatur og það sem eftir lifði kvölds nutum við kvöldkyrrðarinnar í góðum félagsskap hvors annars.


Á sunnudagsmorguninn var ræs kl. 5.30 og við lögðum af stað í þjóðgarðinn aftur kl. 6 í guðdómlega fallegri morgunbirtunni. Allt í einu hrópaði Ragnhildur upp yfir sig og sagðist hafa séð nashyrning. Við hin sögðum henni nú að vera róleg, þetta væri nú bara steinn. En þegar steininn fór að hreyfa sig gólaði Raghildur enn hærra og viti menn, þetta var nashyrningur en í öllum þjóðgarðinum eru einungis um 30 slíkir. Allt varð vitlaust í talstöðinni þegar Paul lét  hina bílstjórana vita og eftir smá eltingaleik vorum við komin í gott návígi við nashyrninginn og náðum að smella góðum myndum af honum. Áfram héldum við og enn æstist leikurinn þegar Paul gaf allt í botn og þá meinum við allt í botn. Við sátum spennt og vissum ekkert eftir hverju hann var að leita. Við keyrðum framhjá stórum hóp af gíröffum en stoppuðum fljótt þegar hann benti okkur á tvö ljón og dauðan gíraffa. Við keyrðum mjög nálgt ljónunum þar sem þau lágu alsæl á meltunni. Beinagrind gíraffans lá á milli þeirra en þau áttu nú aðeins eftir af einum fæti fórnarlambsins. Ótrúlegt að sjá með eigin augum blákaldan veruleika dýranna í garðinum. Á leiðinni til baka sáum við svo gíraffahópinn sem við brunuðum framhjá áður og um tignarleika þeirra þarf fátt að segja, ótrúlega glæsileg dýr!



Þegar við snérum aftur í tjaldbúðirnar glæsilegu beið okkar enn ein dásemdarmáltíðin eða blunch eins og Paul kallaði það. Að henni lokinni lögðum við af stað heim á leið með viðkomu í Masai þorpi. Það var ótrúleg lífsreynsla. Í Kenya eru 42 þjóðflokkar og eru Masaiar einn af þeim en þeir eru einungis um 2% þjóðarinnar. Helstu einkenni þjóðflokksins er klæðaburður og líkamsskraut (sjá myndir) og þess ber að geta að þeir borða eingöngu mjólk, kjöt og blóð. Húsin þeirra eru gerð úr kúaskít og jarðvegi og sjá konurnar um að búa þau til. Termítar dunda sér svo við að borða húsin og því þarf að færa þorpin til á tíu ára fresti. Í þorpinu sem við heimsóttum býr ein stór fjölskylda sem samanstendur af um 140 manns. Fjölkvæni er leyfilegt í þjóðflokknum og á þorpshöfðinginn t.d. 6 konur! Börnin í þorpinu ganga í skóla á daginn og á kvöldin fara stelpurnar til ömmu sinnar og strákar til afa síns og fá þá áfram kennslu í ýmsu sem nauðsynlegt er fyrir þau að kunna. Tekið var á móti okkur með dansi og söng og var Sigþór dreginn í stuðið og sýndi góða takta! Við fengum leiðsögn um þorpið og enduðum svo á að skoða fallegt skart sem þau voru með til sölu. Að heimsókninni lokinni lögðum við af stað heim til Kikuyu, alsæl og glöð eftir enn eitt ævintýrið sem við upplifðum í þessari stórkostlegu ferð!




Nú fer að koma að ferðalokum hjá okkur (við förum öll nema Sóley til Zanzibar þar sem við munum vera í um vikutíma). Við kláruðum síðasta daginn í vinnunni í dag og við vorum öll sammála um að það væri mjög skrítin tilfinning að labba út í síðasta sinn og vita til þess að maður muni sennilega aldrei snúa aftur á þennan stað, allavegana ekki til vinnu. Þetta er búið að vera eitt stórt ævintýri út í gegn, hvern einasta dag, þar sem inneignin í reynslubankanum hefur hækkað mikið og þetta hefur snert okkur mjög mikið og hefur sennilega breytt okkur öllum til frambúðar, og þá til hins betra. Við erum svo ótrúlega þakklát fyrir það sem við höfum heima og það er virkilega erfitt að horfa á fólk hérna þar sem lífið er, hjá flestum sem við höfum hitt, stanslaus barátta hvern einasta dag. En yndislegra fólk höfum við samt ekki hitt, við fáum heimboð frá fólki sem við þekkjum nær ekkert sem er ekkert nema yndislegheitin og þau gefa okkur gjafir þó þau eigi sjálf varla til hnífs og skeiðar.
Við getum svo sannarlega þakkað fyrir heilbrigðiskerfið heima á Íslandi, þegar fólk spyr okkur hérna á spítalanum hvernig sjúkrahúsin okkar eru þá er ekki sanngjarnt að svara neinu nema því að við höfum allt sem við þurfum til að geta veitt góða heilbrigðisþjónustu þar sem ríkir og fátækir fá sömu þjónustuna, það er svo sannarlega ekki raunin hérna.

Við viljum þakka öllum fyrir sem hafa fylgst með okkur, styrkt okkur á einhvern hátt og ástvinina sem bíða þolinmóðir heima.

Yfir og út frá yndislegu Kenýu!
Gréta, Sóley, Helana, Bryndís, Signý, Sigþór og Ranghildur.

1 comment:

  1. Takk fyrir allar skemmtilegu lýsingarnar. Við hlökkum til að fá þig heim
    Pabbi Sandra og allir i sveitinni

    ReplyDelete